09.10.2008 01:03:53 / sosa

nýjasti fjölskyldumeðlimurinn

allt fínasta að frétta, hef ekki komið inn á þetta blogg í langann tíma!
fínt að búa á Ísó
er enn að nudda hjá sjúkraþjálfun vestfjarða og vinn á sjúkrahúsinu hér í 50% vinnu og er í fullu námi í Háskóla Íslands í Þroskaþjálfafræði, já bara svona ef þið væruð forvitin hvað ég væri að gera
hef þetta blogg ekki lengra að sinni
vildi bara monta mig af nýjasta fjölskyldumeðlimnum
hann heitir Bússi og er 2 mánaða gamall.
fengum hann sko bara í gær, og ji minn hann er endalaust sætur og góður
kv Solla og Bússi





getið nálgast nokkrar myndir í viðbót á http://sollaella.bloggar.is/album/51203
hafið það gott og gott væri nú að fá smá komment, skal blogga næst eftir 15 komment, haha sem verður örugglega ekki fyrr en eftir jól :)




» 15 hafa sagt sína skoðun

26.09.2008 17:08:01 / sosa

Ammæli Ammæli ammæli

Þá er það enginn önnur en hún Svan-hil-dur okkar sem á Afmæli í dag og til lukke med dine foelsdag eða hvernig sem maður segir það.

Svan-hild-ur
En segir bara cili-bang pa helet huset.
kv. Steinka


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.09.2008 16:07:35 / sosa

Ammæli Ammæli ammæli

 Jæja þá er Magga systir afmælisbarn á morgun og verður skutlan 14 ára


Til hamingju með afmælið besta og eina systir í heiminum
kv. Steinka systa


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.08.2008 18:57:54 / sosa

THE BIG TWENTY FIVE

vegna anna við áfengisdrykkju og önnur skemmtilegheit hef ég bara engan veginn séð mér fært um að blogga í sumar!, lofa einni góðri færslu innan skamms! :)

en aðalmálið í dag er það að enginn annars en hinn helmingur þessa bloggs er hvorki meira né minna komin hálfa leið í fimmtugt :) haha

hún á afmæli í dag
hún á afmæli í dag
hún á afmæli hún steinka
hún á afmæli í dag

the big twenty five, jé minn eini, erum hér nánustu vinkonur að veita henni áfallahjálp því það er ekkert grín að vera orðinn svona gamall :)

í tilefni dagsins eina flotta kveðju og mynd :)


þó stelpan sé orðin 25 ára þá getur hún ekki hætt að drullumalla :)


svo finnst henni líka voða gaman að leika prinsessu :)

hafið það gott og kastið kveðju á stelpuna :)
kv solla

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.07.2008 01:25:38 / sosa

FORMANNS EMBÆTTIÐ


     Sá dagur rann upp fyrir 24 árum síðan að Formanns embættið okkar í feitavinafélaginu, fæddist í þennan fallega heim, hefur það verið okkar yndisauki að hafa fengið að kynnast þessari þokka Gyðu og hún lengi lifi húrra, húrra, húrra.
Til hamingju með afmælið Gyða okkar :lol:

kv. frá Feitavinafélögunum....og takk fyrir afmælisboðið

p.s Háskólagráða er nú eitthvað ofaná brauð, takk takk Solla livesaver

Steinka stuð

» 8 hafa sagt sína skoðun

11.07.2008 00:11:32 / sosa

NORÐUREYRARJARLINN


Þá er bara að bresta á sælu og Pálína mætt í bæinn og Óskar mætir á laugardaginn en litla dýrið er út á sjó, greyið.....!!! þriðja sælann sem hann missir af vegna sjósins. Elsku besti bróðir Afa (heitinn) og Andlit Sælunnar og Norðureyrarjarlinn á afmæli í dag kallinn hann Leifi Nogga en hann á nú samt eftir að hafa kontról á hlutunum þanna fyrir handan.
Leifi
Segi bara gleðilega Sælu og bless, hress og ekkert stress
kv. Steinka Stuð

» 4 hafa sagt sína skoðun

03.07.2008 01:21:24 / sosa

FREKAR HÆTTI ÉG AÐ DREKKA HELDUR ENN AÐ FARA Í MEÐFERÐ

  Maður biður nú bara guð um að hjálpa sér því það sér ekki fyrir endanum á þessu stuði og djammi fyrir vestan.

En þetta er sonna smá uppgrip fyrir þá sem eru ekki hérna fyrir vestan í sumar og vilja fylgjast með því sem hér fer fram

 28. júní……Hraunball á Edinborg :lol:
5. júlí……Ný dönsk í Boló :lol:
12. júlí……Sæluhelgin á Súganda :lol:
19. júlí……Eurobandið á Edinborginni :lol:
26. júlí…….Ögurball….Gyðu afmæli :lol:
3. ágúst……Mýrarboltaballið :lol:
9. ágúst……..Steinku afmæli :lol:
16. ágúst………Ofurkonu útileiga :lol:

Brjálað að gera í bransanum og skelli hérna inn nokkrum myndum frá djammi seinustu helgar, en það er hreinlega hægt að segja það að það hafi verið hressilega tekið á því um helgina


Solla,Gyða,Aldís og Steinka

Aldís-Solla-Gyða

Þær stöllur ásamt Guðnýju

Gyða og Steinka á Hraunballi

Djammsamloka aldarinnar eftir allaGyða.

Best að hvíla sig fyrir öll átökin kv. Steinka stuð
 


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.06.2008 15:24:34 / sosa

BEFORE AND AFTER

Þá er helgin senn á enda og kem seinna að því en ég varð bara að varpa fram þessari mynd sem var tekin á föstudaginn.
Útskriftarveisla Gyðu
Síðan á útskriftinni hjá Gyðu.... sonna 2005 minnir mig
 feitó júní ´08
Og svo var þessi tekinn á föstudaginn

Þar endilega að kynnar mér hvernig þessi mediferð í SEllá virkar
kv. Steinka

» 4 hafa sagt sína skoðun

27.06.2008 01:06:47 / sosa

Sögulegir atburðir FEITAVINAFÉLAGSINS

  Það gerist sá merki atburður á þriðjudaginn var að Feitavinafélagið skellti sér saman í sund á Suðureyri og það hefur bara ekki gerst síðan á Benidorm 2003 forðum daga :d en það er svo skemmtilegt að segja frá því að upphafið af Feitavinafélaginu hófst eiginlega í þeirri ferð en nafnið kom dálítið seinna, þegar kosningar voru á bæ og var hann Elli okkar eitthvað að kvarta yfir því að við stöllur værum ekki búnar að kjósa og við glærar í þessu kosninga rugli að við fundum það upp að kjósa bara hann Adda Kidda Gau vin okkar en hann er einmitt í XF og svonna aðeins um sig miðjan og þaðan kom nafnið FEITAVINAFÉLAGIÐ og hefur það verið starfandi á fimmta ár og í stjórn eru:
Mýrarboltinn 2007
Formaður: Gyða Mjöll Níelsdóttir
Varaformaður: Steinunn Jónsdóttir
Ritari og Gjaldkeri: Sólveig Erlingsdóttir

Feitavinarfélags  kveðja Steinka


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.06.2008 01:43:54 / sosa

Ammæli,ammæli,ammæli


 Jæja þá er komin endi á þetta Afmælis ástand á heimilinu en málin standa sem sagt þannig að ég á 4 bræður og þeir eiga allir afmæli í júní og nú er það Addi minn en hann er 19 ára í dag og til hamingju með það sætilíus
Systkinin á djamminu
ARNAR, ÓSKAR OG STEINKA

Og brjálað að gera í bransanum ég og Inda fengum óvænta heimsókn í þar seinustu viku en Jón ara og tvíbbarnir mínir komu vestur eftir vitlausa beyju úr ættarmóti og var þeim fagnandi tekið og enduðu þeir í Skötufirðinum þá viku og svo var stefnan hjá þeim tekin til Benidorm í vikudvöl ásamt Margréti og elstu tvö börninn skilin eftir (hvar er barnaverndarnefnd?) Steinka missti svo af 17. júní og var bjargað af Indu og Sollu minni sem settu hana inn á Sjúkkarhús eins og Gareth segir það......og svo er Spýtan bara búin að sitja á hakanum í viku en áætlaður komutími í Bolungarvík er í fyrramálið að tjékka hvað strákarnir mínir hafa verið að bargstúast síðustu viku án mín.......

Og skárra er að vera tönuð heldur en massa svöluð
 kv. TönuSteinka (p.s. er að rústa þessari keppni)

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.06.2008 00:26:18 / sosa

Ammæli,ammæli,ammæli


Þá er það stóri bróðir sem á 28 ára afmæli í dag og til hamingju með daginn. Afmæliskveðja frá Steinku systir
litla gula hænan

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.06.2008 23:24:40 / sosa

jahæhæ

jahæhæ, steinka ekkert að standa sig betur í þessu bloggi þannig ég ákvað að henda inn einni lítilli færslu bara fyrir þá klikkuðu aðdáendur mína sem eru að tapa sér í kommentkerfunum hérna, slakið á kerfið hefur ekki undan :) haha

allt það besta að frétta frá ísó, bara búið að vera brjálað að gera eiginlega alveg síðan ég mætti hingað, finnst skrítið að vera búin að vera hér í 3 vikur og búin að gera svo hrikalega margt eitthvað!!

fágellurnar mínar komnar og farnar, var alveg hrikalega gaman að fá þær í heimsókn, það var m.a. farið út að borða, keyrt út um allar trissur, farið í sjómannasiglingu, sund, djammað og fyrst og fremst haft gaman af, þakka ykkur innilega fyrir stelpur komuna, og veriði skoh velkomnar sem fyrst aftur. það er bara gaman að fá gesti og vona ég nú að fleiri sýni þeirra fordæmi og kíkki á okkur hingað vestur á firði, eigum sko þetta fínasta gestaherbergi og gestarúm :)

tók að mér 2 litlar klikkaðar skottur um helgina (Birnu og Bríeti) það var hin fínasta getnaðarvörn, að vakna kl korter yfir átta á sunnudagsmorgni til að borða morgunmat sem ég átti síðan ekki (barnið fékk bara súkkulaðikex og svala í morgunmat) og horfa á barnatímann og leika í dúkkó, þetta er ekki alveg mín hlið, en samt var þetta nú gaman en haha það var líka gaman að skila skoh :) allt er gott í hófi :)  Birna er orðin svo stór að hún bara lék sér á leikjanet.is haha gott uppeldi þar :)

gengur frábærlega í nuddinu, átti ekki von á svona svaka viðbrögðum, nánast fullt upp á hvern einasta dag, sem er bara alveg frábært :), hélt ég væri að fara hafa það nice í sumar! :)
 
svo fer Anna mín (fyrrverandi sambýlingur) loksins að fara mæta á vestfirðina, held ég sé komin með aðskilnaðarkvíða frá lyngbrekkunni (eða skoh bara stelpunum) en Dóri stendur sig nú bara vel. hann meira segja þreif íbúðina með mér í gær, allur að koma til drengurinn, það er ekkert lengur neitt hótel mamma skoh, ég sýni greyinu enga miskun og læt hann alveg skúra,skrúbba og bóna líka, þetta er ekki bara kvennaverk sko.

hef þetta ekki meira að sinni, ætla enda bloggið á flottustu konunni sem var 94 ára í gær, hún Una mín, fórum með hana út að borða í tilefnidagsins í gær, rosa gott. en mín tók nú bara þátt í kvennahlaupinu.  lét sér nægja að fara í hjólastól en ef ég þekki hana rétt þá mundi hún alveg getað hlaupið þetta, en hey maður má vera í hjólastól þegar maður er 94 ára :)
þetta gæti ekki verið flottari "gömlukonumynd" :)
kærar kveðjur frá Ísó
solla


ohh myndin sést ekki, þetta bloggdæmi er eitthva leiðilegt, kanski kemur hún seinna :)

» 6 hafa sagt sína skoðun

30.05.2008 21:09:09 / sosa

Massa Tan


     Ég og sól eigum ekki saman, eintóm blíða hénna fyrir vestan síðan ég kom og svo er maður náttúrulega að vinna úti sem er algjört snilld og eitthvað nýtt fyrir mér........byrjaði í nýju vinnunni í seinustu viku og það er sko búin að taka á því síðan þá....fyrsti vinnudagurinn á Þingeyri að rífa þakið af Áhaldahúsinu og svo er mín bara búin að vera kyrrsett í Bolungarvíkinni að hlúa af Félagsheimilinu og byggja við það svo Bolvíkingar og aðrir nærsveita menn geti tjúttað.....nóg að gera í bransanum.
Er reyndar að tjá mig eitthvað vegna einmannaleika, Inda í saumaklúbbsgrilli og Solla og Fá Gells á hótelinu hjá Dóra að borða og stefnan svo tekin á Edenborgina að hitta gellurnar og svo er Solla náttúrulega búin að plata mann í sómannadagssiglinguna á morgun og vakna fyrir allar aldir á frídegi og vá hvað það er yndislegt að hugsa til þess að eiga frí á laugar og sunnudögum.

En yndislegu bræður mínir eiga afmæli á sunnudaginn 1. júní 
9 ára gamlir. Til hamingju með afmælið sætulíusar.
 Bræðurnir
Afmæliskveðja frá Steinku systur


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.05.2008 00:27:47 / sosa

á ísó :)

jeyj þá er ég komin á ísó, og búin að koma mér og Dóra auðvitað líka bara ágætlega fyrir hérna á Urðarveginum, þið verðið bara fara koma í heimsókn og sjá, "ódýri" tv skenkurinn tónar bara voða vel við stofuna og löberinn :) haha

bara búið að vera nóg að gera síðan ég kom, byrjaði auðvitað á því að koma öllu dótinu fyrir í íbúðinni og svo er ég búin að koma mér fyrir hjá sjúkraþjálfun vestfjarða og er nuddherbergið mitt ógisslega kósý og ekkert smá gaman að nudda í því, svolítið þægilegra að vera út af fyrir sig heldur en upp í Nuddskóla þar sem voru bara tjöld á milli! verðið bara fara koma í nudd eða heimsókn og sjáh. nú svoh er auðvitað nauðsynlegt að tékka á djamminu hérna, en mamma gyðu bauð mér og steinku í pizzu+ fondú eurovisionpartý á fimmtudaginn síðasta og auðvitað gyða líka,  og þar var skoh ekki klikkað heldur en fyrri daginn, gjéggjað allt saman og endað bara kvöldið á einum bjór, bara fagna því að ísland komst áfram í Euro.  herðu svo var kíkkað í aftur í túngötuna til gyðu og Þórdísar og nokkrir carlsberg fengu að fljóta niður og var bara heljarinnar stuð á Kaffi Edinborg rosa stuð! herðu svo eigum við Dóri svo geggjað skemmtilega nágranna sem buðu okkur og auðvitað steinku og indu líka í Europartý á laugardaginn, var bara fínasta stuð en stoppað stutt á Edinborg í það skiptið.

nú svo er búið að starta ofurkonum þetta sumarið, búin að vera ein fótboltaæfing og núna verður stefnt að því að æfa 2svar í viku, jihh verð skoh komin með ANÓ áður en ég veit af. verðum rosa góðar í Mýrarboltanum og stefnum aðeins hærra en í fyrra :)

nú svo á ég von á alveg hreint eðalgestum á helginni. engum öðrum en þeim FÁGELL´S  mínar frábæru fimm vinkonum úr ármúlaskóla hér í denn. verður alveg hrikalega gaman að fá þessar borgarpíur í heimsókn og sýna þeim djammið á ísó og eiga þær sko ekkert eftir að gefa eftir í þeim efnum. verður að vanda brjálað djamm á kaffi Edinborg (það er staðurinn skoh) 

nú svo meiri fréttir þá er ég að fara vinna í heimahjúkrun lika hér á ísó, bara svona með nuddinu, verð 3 daga í viku bara fyrir hádegi og nudda svo þess á milli. bara obboslega fínt allt saman, er reyndar svolítið að venja mig á þetta frí á kvöldin og er ekkert alveg að kunna á það, hef ekki átt frí bara alltaf á kvöldin síðan ég var unglingur og get ekkert verið bara heima verð alltaf að hafa eitthvað að gera. sem er nú bara gott og skemmtilegt, ekked gaman að hanga heima alltaf. svo spillir ekki fyrir að sumaropnunin í sundlauginni á suðureyri verður breytt 1.júní til kl 22. jahú þá verður skoh farið í sund :)

jæja nóg af fréttum í bili!
kv solla á ísó :)
  

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.05.2008 18:36:35 / sosa

Ísafjörðurinn góði bíður


Ég er ekkert að fara út í smáatriði en gellan er mætt á bloggið og margt hefur verið á könnunni seinustu mánuði. Skellti mér til Ísafjarðar um páskanna, fór í aðgerð eftir páska, skellti mér í sumarbústað með Sollu minni, Önnu, Halldóru, Katrínu og Óla helgina eftir páska. Skólinn hrannaðist upp og nóg var að gera í teikni málum en mín rétt svo rúllaði því upp á seinustu sekúndu. Amma flutti á Akranes og málaði fyrir hana stofuna og ganginn, óvissuferð hjá Lyngbrekku liðiðnu + Steinka og skelltum við okkur á fjórhjóla og svo varð að bera dótið hennar Sollu í flutningabíl og setja nýja dótið hennar Halldóru í Lyngbrekkuna og tengja skápinn og bólstra nýju borðstofustólanna, ný búin að plana eitt stk fótboltamót Húsasmiðjunnar á morgun og búin að bjóða Grafarholtsliðinu í smá kveðju partý og svo er það Ísafjörðurinn góði á mánudaginn og guð ég er eins og litlu krakkarnir, löngu byrjuð að telja niður daganna.......En Svanhildur mín er að fara kveikja á grillinum og það er eins gott að mæta í matinn, þannig að Steinka er farinn í grill........
S &  S
Solla og Svavar á júróvísion balli

Takið eftir Sollu....hahaha guð hvað ég er búin að hlæja mikið af þessari mynd


ÍsafjarðarSteinka kveðjur

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 42
Heimsóknir
Í dag:  7  Alls: 75630
Könnun
Hvar er l.i.v.e.t????
Reykjavík
2 atkvæði

Ísafjörðurinn
3 atkvæði

Útlöndin
0 atkvæði

Ræsið
1 atkvæði

Programmettið
1 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 7